Fjóla Hressa

... og þú hér ;)

24.04.2007 14:47:15 / fjola

Sumarið að koma

Jæja ekkert smá langt síðan maður setti inn eitthvað hér, alltaf nóg að gera . Vinna á fullu og eitthvað að æfa, er að auka hlaupin hægt og rólega. Erum búin að bóka okkur í ferð til Lanzarote með Mömmu, Magga, Lilju og Þorleifi þann 20 mai. Magga bara heima voða gaman hjá henni. Þetta er þvílíkt flott hótel, allir í svítum :lol: það er bara í boði, sem sagt bara næs. Mamma í góðum gír hjá Guðrúnu, heppin:D Við Bassi ætlum pottþétt til Sondeborg í sumar, þarf að fara bóka þetta :) Nú fara hlaupin að hellast yfir hér og ég ekki í neinu stuði að taka þátt úpps8) Þann 3 maí er Icelandair hlaupið 7km verður maður ekki að vera með þar??? Svo eru svo margir búnir í Maraþoni eða á leið, þá finnst manni maður ekkert vera að gera;) Skrítið hvernig maður litast af þessu usss;) Svo fara blessuð prófin að hellast yfir gaman, gaman. Jæja ekki meir í bili love

» 7 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 16:45:21 / fjola

Vorið er að koma :)

Heyrði í Lóunni í gær ooooooo.... það var næs:) Er búin að vera að gíra mig upp úr letinni sem kom í kjölfar þess að vera eina viku á canary. Rosaleg leti heil vika í stopp. Svo nú er þetta tekið með trompi bara beint í ræktina x3 í viku og svo massa upp hlaupin. Alltaf jafn góð tilfinning að komast í góða rútínu aftur. Það er bara ekkert gott að pompa svona ut úr þessu öllu.

» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 13:38:39 / fjola

Fara Varlega

Æfinga græðgin í mér kom mér um koll eftir rosalega viku með einu 10km keppnishlaupi á fimmtud, morgunæf á föstud, hlaupi á laugard þar sem ég mátti þakka fyrir að komast heim eftir 10km.Fékk ég í bakið:(en þar sem ég er nú alveg snillingur í bakverkjum og lækningum á því meini var bara farið í pottinn x2 á dag og hangið grimt í rimlum og BORÐAÐ VOLTARIN eftir ráðleggingum;)þetta tók 3 daga að lagast þannig nú bíð ég eins og 3ja ára krakki eftir að fara í afmæli kl 17.30 (hlaupaæfing) jei jei


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 21:43:54 / fjola

Vindur vindur hvar ert þú :)

:lol:Bibba mín mætti kl 18 í Húsgagnaheimilið hlupum saman 12 km er við lögðum af stað var klikkað rok veit ekkert hvað varð um vindin ??? hann feykti okkur út með golfvelli.Þetta var geggjað comeback hjá okkur Bibbu ekki hlaupið saman síðan??????svo gaman:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 12:33:51 / fjola

Vorið á næsta leiti en samt kalt

Það var 7 stiga hiti er ég brunaði úr búðinni á æfingu í gær rétt fyrir 17.30 og viti menn einn á stuttbuxum mættur:lol: sá var ekki eins brosandi einum og hálfum tíma seinna á leið heim.... maður spyr sig hvað hugsa karlmenn hreinlega lítið undir þessum kringum stæðum RUGL.Vikan byrjaði vel er upptekin af km er að reyna að ýta því frá mér og hugsa frekar um GÆÐI æfingannna:lol:Sunnud sprett æfing 12 sprettir heildar km 10.  Mánud 12km létt tóm hamingja á nýsópuðum göngustígum Fossvogs.Þriðjud morgun æf kl 07 lyft á efri part í klst 8) og stefna sett á 50 mín hlaup seinnipartinn með BIBBU verðandi járnkonu:D.Gaman og talandi um forrréttindi að getað þetta allt ekkert breyst með það hún Bína hlaupavinkona mín sleit krossbönd á skíðum um helgina og þá er maður að tala um jafnvel ár frá ó mæ god:$Vona bara að hún komist sem fyrst í aðgerð og endurhæf. OVER AND OUT

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 13:30:09 / fjola

Merkis dagur og brennsluæf í morgunsárið

:lol:He he vá hvað þetta var nú góð pína Guðrún mín, hefði viljað hafa þig með. Fór í Veggsport í morgunn, tók brennsluæfingu made by Kata:lol:Þetta voru 10 sprettir min hver sprettur og min hvíld á milli bara nokkuð góður hraði 13.5 á brettinu, svo var farið á stígvelið í 20 mín og svitin lak............ svo átti ég að taka þrekstigan í 10 mín en tók bara marga marga stiga ;)svo maga og bak á eftir oo þetta var gaman. Svo 10-12 km í kvöld. Nóg af grobbi af mér því mikið meira grobb er að Þorleifur minn er 19 ára í dag eða morgunn eða þannig, svona er að vera fæddur 29.02 Familian ætlar á Ruby Thusday eða eikkað soll:) Svo var ég buin að gera eina köku fyrir hann nammi namm. Vona að allir hafi það fínt og njóti hvers dags sem Guð gefur:)

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 12:50:10 / fjola

Laaaaangt síðan síðast

Ókey Guðrún mín smá fréttir.Hér gengur allt sinn vanagang mikið um flensu allt í kring vona að við sleppum Magga er reyndar sár í hálsinum það er vonandi ekkert.Lífið gengur sinn vanagang ég er búin að fara til Kanary síðan ég skrifaði síðast.Fórum í viku og þetta var frábært veður og Hótelið snilld.Hlaupin að komast á gott skrið x3 í viku og lyfta fast x2.Mamma er eitthvað smá lasin vonandi verður það ekki neitt því við ætlum að eiga góðan dag á laugardaginn þegar þau eiga Gullbrúðkaup:lol:jeiiiiiii Veisla fyrir okkur.Heyrumst

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.01.2007 23:50:04 / fjola

Góður dagur

Þetta var einn af þessum góðu laugardögum.Vaknaði tímalega mætt niður við laug 9.30. Hlupum af stað slatti af hlaupurum, allt kallar nema tvær konur. Meira konu leysið hér í Árbænum:( margir eru að undirbúa sig fyrir þon nokkrir hér heima í marsmaraþon, einhverjir til Boston og nokkrir til London. Ég get ekki sagt að ég sé tilbúin í nýtt æfingaprógram fyrir maraþon. Efst á óskalistanum varðandi hlaupin er að bæta mig í 10.km og svo er ég frekar volg í Laugaveginn ef púff  hvað ætli fólkið mitt segi um það:lol: Laugavegurinn í þokkalegu veðri er bara snild. Hljóp 15km í morgunn fór í pottinn á eftir og svo í búðina, góður dagur þar. Endaði svo hjá mömmu sem var að passa the tvins;) Horfðum öll á leikinn. Vá þvílík spenna. Arnþór alger dúlla, virkilega var að lifa sig inn í þetta allt.Vona að ég geti hitt mömmu og Stínu á morgunn og heimsótt Jóhönnu í Hlíðarnar, fengið Kanary fréttir.Góða nótt:lol:


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 17:21:11 / fjola

Mikið að gera

Já, það er alltof mikið að gera. vinna ,vinna ,vinna, sofa ,borða ,æfa,þvo þvott ,þrífa eitthvað fjölskylduvænt, nei,mest lítið :( næsta vika fer í heilsuyfirhalningatékk, rosa orð :D en það er víst nauðsynlegt.Rúm vika í Kanary, það verður vonandi bara gaman.Mikið af æfingum núna, hljóp á bretti 10km yfir leiknum í gær. Fjörið, var næstum dottin mörgum sinnun:)

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 12:36:49 / fjola

Enn meiri kuldi brrrrrrr:(

Slæmt er það kuldinn er það mikill að maður fer bara ekki út að hlaupa 12 stiga frost í morgunn.Nei takk ekki út í hægt langhlaup.Fer þá frekar inn á bretti í dag(ef ég nenni:) )Fór á hörkuæfingu í gær létt upphitun 5km svo góður klukkutími í tækjunum með stelpunum ó mæ god held að Kata elski að láta okkur sippa það er þokkalega erfitt;)Fær púlsin vel upp.Vona að það fari að hlýna örlítið þetta er bara ekkert skemmtilegt að hafa svona hræðilega kalt8|


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 17:08:35 / fjola

Kuldi

Komum á klakann kl15.30. Mætt heima um 16.30  Komin á hlaupaæfingu kl 17.30. Hlaupnir 10.km í 5 stiga frosti og svo klikkaður vindur á heimleiðinni, sem sagt 5.km í mótvindi brrrrrrr:S Svo farið inn í Árbæjarþrek og tekið á því með stelpunum púff var sprungin er ég lagðist í rúmmið, ætlaði aldrei að sofna upp tjúnnuð. Slaufaði morgun þrekinu í Veggsport sökum skynsemi:D. Jamm það er fjör hér, æft inni á tveimur stöðum og svo hlaupið úti en ég get ekki sagt að þetta sé skynsamlegt þegar kuldin er komin yfir 8 í mínus:$ Er enn að grobbast yfir powerraid hlaupinu mínu það var bara góð útkoma:D Grobb grobb. Over and out


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2007 22:57:41 / fjola

Bisness:)

Engin friður nú örkum við Bassi minn á stað á morgunn.Förum til Kölnar á húsgagnasyningu.Fljúgum til Stansted og svo yfir til Kölnar ja það er liðin tíðin er pabbi og mamma mættu og pössuðu heimili og börn.Nú eru þau bara ein :lol: voða leiðinlegt.en amma var nú alltaf með mat og pönsur:Dþað var sko kosy.En við verðum komin aftur á miðvikud en þá verður stóra farin:cry:Heyrumst love ju dullurnar mínar


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 23:30:24 / fjola

!0km í snjó:)

kláraði powerraid stolt:lol: klikað færi. Snjór og hálka) Lyftingarnar greinilega að skila sér. Forrétindi en og aftur:lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 23:19:53 / fjola

Allt á fullu

:lol:Bara alveg óþarfi að vera í blogginu Guðrún mín og þið sem áttuð að vera að fara á morgun..En...???eruð bara ekkert að fara .Vonandi gengur bara allt vel:lol:Æfingarnar í hámarki um þessar mundir:D svaka gaman.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2007 00:33:00 / fjola

!8 stykki

vá fór 18km í dag, ekki málið, en það sem var málið var að stóra birtist á Íslandi í fyrradag. Tók mig á sálinni:lol: vá hvað það var skrýtið, var bara ekki að trúa þessu. Mike er búin að vera hér i viku fer á morgun. Ég er hálfegin að jólin eru over og allt fer i sinn vana gang eða þannig. Búin að vera rosa dugleg í öllu á þessu ári. love

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9